05/24/2011 11:57:05

Fréttatilkynning frá Samtökum ferðaþjónustunar

Ágætu félagsmenn
 
Á fundi viðbragðshópsins í morgun kom fram hjá Almannavörnum að það yrði flogið að gosstöðvum eftir hádegi til að meta stöðuna en askan virðist þynnri.  Eftir það verður gefin út frétt.   Flug gekk ágætlega í gær og í dag virðist hægt að fljúga fram eftir degi að undanskildu Bretlandi.  Það skal þó ítrekað að staðan er metin á 6 klst. fresti.
 
Það var mikil ánægja hjá strandaglópum í Reykjavík að fá ókeypis gestakort og var margt um manninn á Upplýsingamiðstöð í Aðalstræti.
 
Við hringdum í hótelin í Reykjavík í gær og það virðast nánast engar afbókanir hafa borist fram í tímann en ljóst að það eru mikil viðskipti að tapast í maí.
 
Við ræddum í gærmorgun við félaga okkar á gossvæðinu og spurðum hvað stjórnvöld gætu helst gert til aðstoðar og svarið var almennt að það þyrfti meiri háttar átak í hreinsun þegar askan hættir að falla á svæðið.  Það er ekki hægt að taka á móti gestum fyrr en búið er að hreinsa.  Við komum þessum upplýsingum strax til iðnaðarráðherra sem fór með þær inn á ríkisstjórnarfund.  Það er mikilvægt að skipulagið sé til staðar þegar öskufallið hættir.
 
Viðfest er gott yfirlit frá Íslandsstofu sem þið getið sent til erlendra ferðaskrifstofa o.fl. og sett á heimasíðuna ykkar. Sjá tilkynningu HÉR
 
 
Með bestu kveðju
 
SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
 
Til baka