Sýnileiki erlendis
Markaðsstofan hefur á þessu ári tekið virkan þátt í sýningum og kynningum á ferðakaupstefnum erlendis. Í upphafi árs tókum við ásamt öðrum íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum þátt Íslandskynningu í St. Pétursborg og síðan á Matkasýningunni í Helsinki. Þá hefur markaðsstofan í samvinnu við aðrar markaðsstofur á landsbyggðinni tekið þátt í sýningarbásum Íslandsstofu á ITB-sýningunni í Berlín og TUR-sýningunni í Gautaborg. Aukinn sýnileiki á erlendum vettvangi er fljótur að skila sér í víðfeðmu tengslaneti við fagfólk sem er að kynna og selja landið og greinilegt að aukin miðlun upplýsinga beint úr héraði höfðar vel til kaupenda á þesum markaði. Á þessum sýningum er mikil eftirspurn eftir nýjungum og því sem er ferskast í faginu. Til að bregðast við því þarf að vera vel með á nótunum og nauðsynlegt að vera í góðum tengslum við fyrirtækin á svæðinu. Af hálfu markaðsstofunnar hefur því verið lögð áhersla á taka beinan þátt í kynningum af þessu tagi og samvinna við Íslandsstofu hefur tekist vel.