Innri markaðssetning
Á síðustu misserum hefur Markaðsstofan unnið markvisst að innri og ytri markaðssetningu. Þannig hefur markaðsstofan orðið sýnilegri innan fjórðungsins og verkefni hennar verið kynnt fyrir ferðaþjónustuaðilum, sveitarfélögum og almenningi. Stór liður í þessu starfi hefur verið fólgin í að skipuleggja heimsóknir erlendra ferðkaupenda um svæðið og skapa tengsl við þá, m.a. með svokölluðum vinnustofum (e. workshops) sem Markaðsstofan hefur staðið fyrir í tengslum við þessar ferðir. Markaðsstofan stóð einnig að uppsetningu á atvinnulífssýningu sem haldin var í Ráðhúsinu Reykjavíkur í lok apríl undir yfirskriftinni ,,Suðurland já takk“. Sýningin var tvískipt. Fyrri daginn var fagaðilum s.s. ferðaskrifstofum, bókunar- og upplýsingamiðstöðvum, boðið að koma, en seinni daginn var sýningin opin almenningi. Sýningin var vel sótt báða dagana og þótti í alla staði takast afar vel. Auk þess að beina kastljósinu að vörunýjungum, framleiðslu og þjónustu á Suðurlandi stuðlar sýning sem þessi aukinni samvinnu og samheldni aðila í fjórðungnum og styrkir ímynd okkar út á við. Öll þessi vinna hefur líka skilað sér í auknum áhuga fyrirtækja á Suðurlandi um þátttöku í Markaðsstofu Suðurlands en fjöldi nýrra fyrirtækja skráð sig til þátttöku í verkefnum á vegum MSS.
Til baka