02/22/2011 17:09:16

Suðurland já takk !

Suðurland já takk – breytingar á sýningu!
Til fyrirtækja og stofnana á  Suðurlandi.
Ákveðið hefur verið að breyta tilhögun landshlutasýningarinnar ,,Suðurland já takk“ í Ráðhúsinu um miðjan mars.   Aðeins verður um tvo sýningardaga að ræða, föstudaginn 18. og laugardaginn 19. mars.
Markmið sýningarinnar er að kynna framleiðslu og þjónustu á Suðurlandi. Sérstök opnun verður síðdegis á föstudag þar sem fagaðilum, ferðaskipuleggjendum, bókunarmiðstöðvum, ferðaskrifstofum og þeim sem eru að kaupa þjónustu af Suðurlandi verður boðið í sérstaka móttöku. A laugardeginum verður neytendasýning þar sem gestum og gangandi verður boðið að koma og kynna sér það sem við Sunnlendingar höfum uppá að bjóða.
Við viljum hvetja sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir á Suðurlandi að taka þátt í sýningunni, eiga þannig þátt í að gera landshlutann sem sýnilegastan (og minna á svæðið sem ákjósanlegan kost til hvers konar verslunar.
Þátttökukostnaður er 8.900 fyrir hvern bás/pláss sem  fyrirtæki, sveitarfélög og svæðasamtök taka.  Ef klasar eða sveitarfélög vilja kynna sig sem heild er kostnaður fyrir hvert auka fyrirtæki í bás 4.900  kr.
Þegar endalegur þátttökulisti liggur frammi verður sýningarsvæðið skipulagt með þátttökuaðilum.
Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á þátttöku vinsamlega hafið samband  við
Davíð Samúelsson, davidsam@south.is  4835555                  

Steingerði Hreinsdóttur, steingerdur@sudur.is  4804212               

Til baka