08/31/2010 19:20:27

Til VestNordenfara

Ágætu samstarfsaðilar,

Á VestNorden kaupsýningunni sem haldin verður á Akureyri 15. til 17. september er ætlunin að þjappa þeim sunnlensku ferðaþjónustuaðilum saman sem eru aðilar að markaðsstofunni með sérstakri kynningu og átaki.
Hugmyndin er að við séum staðsett í sameiginlegu svæði á sýningunni og að við kynnum okkur sem heild út á við þó svo að hvert og eitt fyrirtæki leggi áherslu á sig og sína þjónustu.
Markmiðið er að gera Suðurland sýnilegra og sterkara útá við sem heild og að við séum öll sameinuð í að koma Suðurlandi sem best á framfæri.
Markaðsstofa Suðurlands mun láta ferðaþjónustufyrirtæki á Suðurlandi sem eru aðilar að markaðsstofunni hafa kynningargögn til að samræma útlitið á Suðurlandssvæðinu.
Um er að ræða:
1.      grænan dúk – renning til að setja á borð (lime er einkennislitur MSS)
2.      sunnlenska blómaskreytingu m/merki Visit South Iceland
3.      rmynddiskur til ferðakaupenda með kynningu á Suðurlandi 
4.      barmmerki fyrir sýnendur með kynningu á átakinu - Visit South Iceland ,,power and purity“
5.      konsum súkkulaði-smástykki til að bjóða á VN merkt Visit South Iceland
6.      landshlutabæklingurinn The South Iceland official Tourist Guide 2011

Eins mun MSS bjóða ferðakaupendum að heimasækja Suðurlandssvæðið og verður boðið sérstaklega í coctailboð fyrsta daginn í lok viðtala 15. september milli klukkan 16.00 og 18.00. Þarf gefst ferðaþjónustuaðilum kostur á að koma sér enn frekar á framfæri við ferðakaupendur og eins að kynnast betur innbyrðist öðrum ferðaþjónustuaðilum á Suðurlandi.

Til baka