08/30/2010 11:36:57

Íslandskynning í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn

Til ferðaþjónstuaðila á Suðurlandi.

29. september næstkomandi verður Íslandskynning í sendiráðinu í Kaupmannahöfn.
Þetta er kynning á íslenskum matvælum, vatni, bjór, heilsuvörum og ferðaþjónustu.

Ferðaþjónustufyrirtækjum á Suðurlandi gefst kostur á að senda  nokkra bæklinga ef þeir hafa áhuga á að þeir liggi frammi á kynningunni.

Um 500 manns er boðið á kynninguna.
Meðal boðsgesta eru allar helstu ferðaskrifstofur Danmerkur og blaðamenn sem skrifa um ferðaþjónustu.

Starfsmenn sendiráðsins vonast til að einhverjir hafi áhuga á að hafa bæklingana sína á kynningunni
og hér er heimilisfangið sem má senda á beint.

Islands ambassade
Strandgade 89
1401 København K
Danmark 
Markaðsstofu Suðurlands, Tryggvagötu 36, 800 Selfossi mun sjá um að koma kynningarefni á framfæri fyrir þau ferðaþjónustufyrirtæki sem eru aðilar að markaðsstofunni.
Til baka