01/27/2012 15:10:13

SEEDS býður þér samstarf

Ágæti samstarfsaðili,

Mér voru kynnt þessi samtök og starfssemi þeirra. Ég tel að margir samstarfsaðilar Markaðsstofu Suðurlands geti nýtt sér þetta.
sjá texta:  

Viltu eiga þátt í að skapa ungu fólki um allan heim tækifæri til að sækja Ísland heim? Ísland er gríðarlega eftirsóttur áfangastaður, en við hjá sjálfboðaliða-samtökunum SEEDS önnum varla eftirspurn eftir verkefnum hérlendis – getur þú kannski skapað tækifæri í samvinnu við okkur?

SEEDS taka á móti erlendum sjálfboðaliðum til þess að sinna fjölþættum verkefnum á sviði umhverfis-, menningar- og félagsmála. SEEDS skipuleggur vinnubúðir um allt land í samstarfi við einstaklinga, félagasamtök og sveitarfélög.

Búðirnar standa allajafna í tvær vikur, oftast með þátttöku 8-12 sjálfboðaliða og hafa verkefnin verið mjög fjölbreytt. Þau hafa meðal annars falist í hreinsun strandlengjunnar á Langanesi, Arnarfirði, Reykjanesskaga og Viðey, gróðursetningu í Dýrafirði og Bláfjöllum, lagningu og viðhaldi göngustíga í Vatnajökulsþjóðgarði, Þórsmörk og Fjarðabyggð, aðstoð við undirbúning og framkvæmd ýmissa hátíða og menningarviðburða víðs vegar um landið, viðhaldi minja og fornleifa og torfvinnu svo eitthvað sé nefnt. Á sviði félagsmála hafa sjálfboðaliðar SEEDS aðstoðað Fjölskylduhjálpina við úthlutun matarpakka fyrir jólin Rauða krossinn við fjáröflun á aðventunni. Þá tóku hópar frá SEEDS þátt í hreinsunarstarfi eftir eldgosið í Eyjafjallajökli.

Á vegum SEEDS hefur mikill fjöldi ungmenna hvaðanæva að úr heiminum komið til Íslands og er sívaxandi áhugi á að koma hingað. Samtökin eru alltaf á höttunum eftir nýjum samstarfsaðilum til að anna eftirspurninni. Ef þú hyggur á verkefni á sviði umhverfis-, menningar- eða félagsmála og þarft á starfskrafti að halda þá hvetjum við þig eindregið til að hafa samband við okkur.

Með kærri kveðju f.h. SEEDS
Valdís Gunnarsdóttir
Verkefnastjóri/Project Manager
-
SEEDS
Klapparstígur 16
101 Reykjavík
Ísland
www.seeds.is
www.facebook.com/seedsiceland
www.facebook.com/volunteer.workcamps.iceland

Til baka