Undirbúningur fyrir sýninguna ,,Suðurland í sókn“
Í fyrra stóðum við Sunnlendingar að sýningunni ,,Suðurland já takk“ í Ráðhúsi Reykjavíkur um miðjan mars. Sýningin tókst vel og var almenn ánægja með undirtektirnar. Ætlunin er að Markaðsstofan endurtaki nú leikinn og standi ásamt fyrirtækjum á Suðurlandi fyrir kynningu í Ráðhúsinu Reykjavíkur 16. og 17. mars 2012. Sýningin verður að þessu sinni haldin undir yfirskrifinni ,,Suðurland í sókn“ með sams konar sniði og í fyrra. Fyrri daginn verður fagaðilum sérstaklega boðið (ferðaskrifstofum og bókunar- og upplýsingamiðstöðvum) og seinni daginn verður almenningi gefinn kostur á að koma og kynna sér það sem við Sunnlendingar höfum upp á að bjóða. Þátttökukostnaði verður sem fyrr haldið í lágmarki til þess að sem flest fyrirtæki sjái sér hag í að koma og kynna sig. Ætlunin er að undirbúningshópur vinni að sýningunni og deili niður verkefnum þannig að hver taki ábyrgð á sínum verkþætti.