01/05/2012 10:11:29
Styrkur úr þróunarsjóð
Umsóknarfrestur fyrir Ísland allt árið - þróunarsjóð rennur út þriðjudaginn 10. janúar nk. Markmiðið með þróunarsjóðnum er að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka arðsemi fyrirtækja. Styrkir verða veittir úr sjóðnum samtals að upphæð 35 milljónir kr. Annars vegar verður stutt við verkefni fyrirtækja sem lengt geta ferðamannatímann á tilteknum svæðum og hins vegar við samstarfsverkefni fyrirtækja sem vilja sameiginlega þróa þjónustu sem haft getur sömu áhrif víðar um landið. Í umsókn þurfa að koma fram skýrar hugmyndir um þá þjónustu og upplifun sem skila eiga í senn aukinni atvinnu og varanlegum verðmætum. Verkefnin verða að koma til framkvæmda innan þriggja ára frá því að styrkur er veittur.
Allar nánari upplýsingar og umsóknarform er að finna hér: http://www.nmi.is/impra/styrkir-og-studningsverkefni/island-allt-arid/ eða á heimasíðu Landsbankans: www.landsbankinn.is