12/08/2011 17:56:21
Góður vitnisburður aðila í Markaðsstofunni
Á Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda veitti skrifstofa Ferðaþjónustu bænda bæjum innan samtakanna viðurkenningar og er það í fyrsta sinn sem skrifstofan veitir verðlaun sem þessi. Viðurkenningar voru veittar í tveimur flokkum.
Í flokknum „Framúrskarandi ferðaþjónustubær 2011“
Margrét og Jóhann í Vatnsholti v/Villingaholtsvatn: Þau keyptu sér jörð austan við Selfoss, tóku allt í gegn; íbúðarhúsin tvö fengu andlitslyftingu, mokað var út úr útihúsunum og kartöflukofanum. Nú síðast komu þau upp herbergjaálmu og stækkuðu veitingasalinn. Þau hófust handa brosandi og full af eldmóði og ásamt öllum húsdýrunum á staðnum hafa þau náð að heilla gestina upp úr skónum.
-----------
Í flokknum „Hvatningaverðlaun Ferðaþjónustu bænda 2011:
Helena og Knútur í Friðheimum, Bláskógarbyggð: Garðyrkjubændur og hestaáhugafólk sem hafa útbúið skemmtilegan kokteil sem endurspeglar það sem þau standa fyrir sjálf. Þau, ásamt börnum sínum, bjóða upp á hestasýningar fyrir hópa á fjölmörgum tungumálum en þau eru auk þess í verkefninu Opinn landbúnaður þar sem gestum gefst kostur á að kíkja í gróðurhúsið. Nú standa þau í stórræðum, þau eru að stækka gróðurhúsið um 2000 m2 (verður þá í allt yfir 5000 m2). Í nýbyggingunni er gert ráð fyrir móttökusvæði fyrir gesti og hugmyndin er að gefa gestum möguleika á að bragða á gómsætri tómatsúpu í gróðurhúsinu – Það gerist ekki meira „beint frá býli“ en það! Þess má geta að öll umgjörð staðarins er til fyrirmyndar og á sumrin er hægt að koma við heim á hlaðið og næla sér í ferska tómata í sjálfsafgreiðslunni!