12/05/2011 10:17:23
Kynnisferð í V-Skaftafellssýslu
14. desember n.k. verður bókunar- og ferðaskrifstofum boðið í kynnisferð um V-Skaftafellssýslu, það Markaðsstofa Suðurlands ásamt ferðamálafulltrúum á svæðinu sem standa að þessari ferð. Sambærilegt og í fyrri ferðum sem farnar hafa verið um fjórðunginn i haust verður reynt að heimsækja sem flest fyrirtæki sem aðilar eru að Markaðsstofunni og öllum ferðaþjónustuaðilum á svæðinu verður gefin kostur á að koma í workshop og kynna sig og sín fyrirtæki. Workshopin verða í Brydebúð og á Hótel Geirlandi. Nánari upplýsingar um ferðina á skrifstofu Markaðsstofu Suðurlands 483 5555
Til baka