Hvatningarverðlaun í heilsutengdri ferðaþjónustu
Til að tryggja áframhaldandi þróun á sviði heilsuferðaþjónustu á Íslandi hefur iðnaðarráðherra ákveðið að veita ein hvatningarverðlaun að fjárhæð ein milljón króna til áhugaverðra verkefna á sviði heilsuferðaþjónustu. Verðlaunin verða veitt í desember næstkomandi.
Hverjir geta tekið þátt:
Hópar fyrirtækja, stofnana og einstaklinga sem vinna sameiginlega að áhugaverðum vörum á sviði heilsuferðaþjónustu sem eru í þróun.
Við mat umsókna verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:
Verkefnishugmyndar
Markhóps – er um nýjan erlendan markhóp að ræða?
Er varan í boði á lágönn?
Hvað er einstakt við vöruna / Upplifunin?
Hver er heilsuávinningur ferðar?
Samsetningar hóps og vel skilgreindra hlutverka innan samstarfshópsins
Vandaðra umsókna
Umsóknum skal skilað til Ferðamálastofu eigi síðar en 20. nóvember næstkomandi á sérstöku umsóknareyðublaði.
Hvatningarverðlaun í heilsutengdri ferðaþjónustu - umsóknarblað (PDF)