11/21/2011 10:02:53

Kynnisferðir í Ríki Vatnajökuls.

Síðasta miðvikudag kom hópur fulltrúa frá íslenskum ferðaskrifstofum í FAM ferð um Ríki Vatnajökuls á vegum Markaðsstofu Suðurlands. Ferðin tókst ákaflega vel og þótti fólki mikið til um framboð hér á ferðaþjónustu yfir allt árið. Ferðaþjónustufyrirtækjum í Ríki Vatnajökuls var boðið að koma og hitta hópinn á fyrirtækjakynningu (workshop) á Smyrlabjörgum til að kynna sína þjónustu og komast í beint samband við þessar ferðaskrifstofur, og nýtt sex fyrirtæki sér þetta tækifæri.

Næsta miðvikudag 23. nóvember stendur Markaðsstofa Suðurlands fyrir annarri sambærilegri ferð á svæðið og aftur er öllum fyrirtækjum í Ríki Vatnajökuls boðið að kynna sína þjónustu fyrir hópnum. Venjulega eru þessar kynningar bara opnar fyrirtækjum sem eru í Markaðsstofu Suðurlands en þarna er öllum fyrirtækjum innan okkar vébanda boðið að koma og kynna sér í leiðinni þetta form og þjónustu markaðsstofunnar

Til baka