11/01/2011 14:19:04

Landsbyggðasjónvarpið N-4

N4 sjónvarpsstöð í samvinnu við Markaðsstofu Suðurlands og Kjörís hefur unnið að þáttum sem eru að öllu leyti tileinkaðir Suðurlandinu. Þættirnir nefnast Áttavitinn og eru sýndir á hverjum miðvikuegi á N4. Í fyrsta þættinum, sem fór í loftið 20.október síðastliðinn, og er aðgengilegur á heimasíðu stöðvarinnar www.n4.is, var Árnessýslan tekin fyrir. Í þættinum er ferðaþjónustu og menningu á Suðurlandi gerð góð skil. Þættirnir verða á dagskrá vikulega í allan vetur þar sem hin ýmsu svæði verða heimsótt allt frá Hellisheiði og austur að Höfn.

Til baka