10/25/2011 14:06:11

Inspired by Iceland

Kæru samstarfsaðilar

Við hjá Markaðsstofunni viljum hvetja ykkur til að taka þátt í Inspired by Iceland herferðinni og setja inn heimboð á heimasíðu átaksins www.inspiredbyiceland.com
 
Inspired by Iceland herferðin hefur farið aftur af stað og í október og nóvember hvetjum við Íslendinga til að bjóða ferðamönnum í heimsókn. Eins og áður mun stærsti hluti átaksins eiga sér stað erlendis, en hugmyndin er að gefa erlendum gestum er sækja landið heim “íslenska” upplifun.
 
Hugmyndin er að fá Íslendinga til að opna dyr sínar þennan veturinn. Á sama hátt og Dalvíkingar bjóða heim á Fiskidaginn mikla reynum við að fá hundruð Íslendinga um allt land til að gera hið sama. Hægt er að bjóða heim í pönnukökukaffi, kenna að prjóna peysur, taka fólk með í uppáhalds gönguferðina eða bjóða heim í íslenskan mat. Töfrarnir við þessa hugmynd eru að hina sönnu íslensku gestrisni er að finna um allt land. Ef þú ert þenkjandi ferðamaður sem leitar eftir einstakri upplifun sem er ekki fyrir alla þá er tækifærið núna, ef þú vilt fyllast innblæstri af landi og þjóð.
 
Þetta er mjög einfalt í framkvæmd, heimamaður skráir heimboðið á heimasíðunni og tilgreinir þar fjölda gesta, tímasetningu og hvar á landinu heimboðið á sér stað auk þess að setja upplýsingar um það sem í boði er.
 
Ferðamaðurinn skrifar svo athugasemd við það heimboð sem hann vill þiggja og heimamaðurinn samþykkir, þannig kemst á beint samband milli heimamannsins og ferðamannsins.
 
Það er um að gera að nota hugmyndaflugið og láta sér detta eitthvað skemmtilegt í hug eða jafnvel leyfa ferðamönnum að taka þátt í daglegu lífi heimamanns.
Til baka