Sýningar
Undirbúningur og vinna við VestNorden er mikilvægur þáttur í starfsemi MSS. Ber þar hæst vinna við landshlutbækling sem gefinn er út í tengslum við sýninguna. Í ár var sýningin haldin í Færeyjum dagana 13. til 14. september. Við Sunnlendingar sýndum á sýningunni samstöðu með því að básarnir okkar voru allir skreyttir sams konar borðskreytingum. Það fór því ekki á milli mála hverjir væru þar á ferð. Á sýningunni voru um sextán sýnendur aðilar að Markaðsstofu Suðurlands. Í ár sat framkvæmdastjóri MSS einn á básnum og sinnti öllum viðtölum. Mikill áhugi ferðakaupenda var á Suðurlandi og dagskrá báða dagana þéttskipuð viðtölum. Mikið var um fyrirspurnir um afþreyingu og ný fyrirtæki á svæðinu ásamt miklum áhuga á FAM- og pressuferðum. Yfirhöfuð virtust viðmælendur vera að kynna sér vöru og þjónustu í fjórðungnum af ósviknum áhuga og í fullri alvöru, en ekki bar eins mikið á auglýsingasölufólki eins og verið hefur mikið um seinustu ár.
Til baka