08/29/2011 20:10:42
Enn mikil vaxtartækifæri á netinu
Þegar samfélagsmiðlarnir eru farnir að fella ríkisstjórnir, þá hljóta fyrirtæki að fara að spyrja sig hvaða áhrif þessir miðlar geta haft á þau. Flest fyrirtæki í dag gera sér grein fyrir mikilvægi leitarvélanna en enn eru gríðarlega stór tækifæri vannýtt, ekki hvað síst fyrir íslensk fyrirtæki. Nýir miðlar hafa verið að birtast á markaðnum og eru víða orðnir mjög vinsælir eins og twitter og foursquare.
Markaðsstofa Suðurlands stendur fyrir námskeiðum með Hirti Smárasyni í markaðssetningu á netinu á Selfossi og Höfn núna í september. Hjörtur kennir markaðsfræði og nýsköpun við Háskólann á Hólum og er einn helsti sérfræðingur landsins á þessu sviði og þótt víðar væri leitað, en hann er í fyrsta sæti á lista yfir áhrifamesta markaðsfólkið í ferðabransanum á netinu.
"Þótt netið hafi vaxið gríðarlega á það enn helling inni og sem dæmi má nefna að fyrir tveimur árum voru enn ekki nema um 30% Þjóðverja sem bókuðu ferðir sínar á netinu. Í ár er þessi tala hins vegar komin upp fyrir 50%. Þó er þetta lægsta hlutfall þeirra sem bóka ferðir á netinu í hefðbundnum markaðslöndum íslenskra fyrirtækja. Eftir því sem lengra líður verður samkeppnin í markaðssetningu á netinu harðari. Samkeppnin eykst stöðugt en tækifærunum fjölgar líka. Á námskeiðunum mun ég fara yfir þá þróun sem er að eiga sér stað og helstu atriði og aðferðir sem skila árangri í markaðssetningu á netinu í dag." Námskeiðin verða haldin 5. og 6. september á Selfossi og 19. og 20. september á Höfn í Hornafirði. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á og www.scope.is.
Til baka