08/26/2011 14:18:56
Stjórnun í ferðaþjónustu- og afþreyingarfyrirtækjum
SiFa eða stjórnun í ferðaþjónustu og afþreyingarfyrirtækjum, er vinnuheiti á örstuttu könnunarverkefni sem unnið verður í sumar þar sem markmiðið er m.a að skoða þörfina fyrir hagnýta, rekstrar- og stjórnunarmenntun innan ferðaþjónustunnar. Við sem höfum starfað við ferðaþjónustu lengi, vitum að þetta er ein mest vaxandi atvinnugrein framtíðar og því mikilvægt að styrkja tengslanetið, menntun og reynslu eins og kostur er.
Oft er sagt að greinin sjálf sé ekki höfð með í ráðum þegar verið er að taka ákvarðanir og því finnst okkur mikilvægt að spyrja ykkur, hvað þarf að laga, bæta , breyta ? Hvaða þekking, reynsla, menntun myndi styrkja samkeppnistöðu og auka arðsemi ?

Nú erum við á þinni slóð (Suðurlandi) daganna 29. til 31. ágúst.
Við undirritaðar förum um landið og viljum hitta aðila innan greinarinnar, í samvinnu við Markaðsstofurnar á hverjum stað. Auk þess verður rætt við fjölda erlendra og innlendra ferðaþjónustukaupenda, ásamt því að hitta aðra aðila sem eiga mikil samskipti við greinina.
Niðurstöður úr þessari könnun munu síðan liggja fyrir í haust og í framhaldi af því verður skoðað hvernig við getum betur staðið að því að byggja upp ímynd, gæði, menntun og fagmennsku innan greinarinnar.
Aðrir samstarfsaðilar
Þeir sem standa formlega að þessu verkefni og styrkja framkvæmdina eru Vaxtasamningur Vesturlands, Ferðamálasamtök Vesturlands, Háskólinn á Bifröst og Skref fyrir Skref ráðgjafafyrirtæki.
Til þess að undirbúa þetta verkefni eins vel og kostur er, höfum við rætt við SAF, Markaðsstofurnar, Ferðamálastofu, HR , HA, MK, Símenntunarmiðstöðvar og ýmsa aðra þá sem þekkja vel til greinarinnar.
Við vonumst til þess að hitta þig í sumar.
Bestu kveðjur

Hansina B Einarsdóttir, Sfs.ráðgjöf, fyrrum framkvæmdastjóri og eigandi að Hótel Glym, Unnur Halldórsdóttir, formaður ferðamálasamtaka Íslands og húsfreyja að Hótel Hamri
Til baka