Það er í raun réttur áratugur síðan verkefni undir heitinu Markaðsstofa Suðurlands var sett af stað og þótt margt hafi áunnist á þessum tíma var ljóst haustið 2008 að tímabært væri að gera breytingar á rekstrarformi, starfssvæði og stofnaðild Markaðsstofunnar og var því tekið það skref að stofna sjálfseignarstofnun um hana 19. nóvember 2008. Vilji ríkisins um stuðning við markaðsstofur landshlutanna hvatti mjög til þess að formgera verkefnið upp á nýtt.


Stofnendur stofunnar eru Ferðamálasamtök Suðurlands, Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, Rúnturinn um Rangárþing og loks Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu og nær starfssvæði stofunnar frá Lónsheiði í austri að Sandskeiði í vestri auk Vestmannaeyja. Innan þessa starfsvæðis eru 15 sveitarfélög, um 24 þúsund íbúar og 2.400 fyrirtæki af ýmsum toga.
Markaðsstofur hafa nú verið stofnaðar í öllum landshlutum og eru sjö talsins, þ.e.a.s. á Suðurlandi, Austurlandi, Norðurlandi og Vesturlandi, á Vestfjörðum og Reykjanesi auk Höfuðborgarstofu. Á milli stofanna ríkir farsælt og gott samstarf, sín á milli og ekki síst við Ferðamálastofu. Samræmt útlit er á landshlutabæklingum og vefsíðum, sameiginlegir viðburðir o.fl. sem stuðlar að sameiginlegri markaðssetningu.


Markaðsstofurnar fá stuðning frá ríkisvaldi sem þó leggur áherslu á að sveitarfélög og fyrirtæki taki einnig þátt í starfsemi þeirra í framtíðinni. Þátttaka sveitarfélaga innan landshlutans er afar góð og ekki síður hjá fyrirtækjum en um þessar mundir eru 55 fyrirtæki aðilar að stofunni og fleiri væntanleg. Þetta er vitaskuld fagnaðarefni á fyrstu mánuðum starfseminnar.
Hver er svo tilgangurinn? Jú, að efla markaðs- og kynningarstarf, innanlands og utan, fyrir Suðurland með sérstakri áherslu á að auka atvinnustarfsemi og gjaldeyristekjur með auknum fjölda gesta og íbúa á Suðurlandi. Sömuleiðis að efla samstarf og upplýsingamiðlun atvinnulífs, sveitarfélaga og ríkisvalds, bæta ímynd svæðisins og auka eftirspurn eftir vörum og þjónustu sem eru í boði á Suðurlandi. Styrkja þannig byggð og fjölbreytt atvinnu- og búsetuskilyrði verði til staðar á landsvæðinu öllu.


Ef þú vilt nánari upplýsingar um stofuna, hin ýmsu verkefni og það sem framundan er, þá er þér velkomið að hafa samband með því að senda tölvupóst á: info@south.is

Kynningarbæklingur um Markaðsstofu Suðurlands: Smelltu hér

Geinagerð um Markaðsstofu Suðurlands: Smelltu hér