GÁTLISTI FYRIR FERÐAÞJÓNA - SJÁ HÉR
Útgáfa leyfa, skráning á starfsemi og eftirlit með að skilyrðum fyrir þeim sé fullnægt eru samkvæmt lögum um skipan ferðamála eitt af hlutverkum Ferðamálastofu.
Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um þá starfsemi sem er leyfis- eða skráningarskyld og sækja umsóknareyðublöð.
Um þrennskonar leyfis- og skráningarskylda starfsemi er að ræða:
LEYFI TIL REKSTURS FERÐASKRIFSTOFU - SMELLTU HÉR
LEYFI TIL REKSTURS FERÐASKIPULEGGJENDA - SMELLTU HÉR
SKRÁNING Á BÓKUNARÞJÓNUSTU OG/EÐA UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ - SMELLTU HÉR
En hvar fæ ég hvaða vottorð?
Til hægðarauka er hér að neðan listi yfir vottorð sem þarf að skila með umsókn um ferðaskrifstofu- eða ferðaskipuleggjendaleyfi og hvar þeirra er aflað.
Búsetuvottorð: Þjóðskrá
Sakavottorð: Lögreglustjóri þar sem viðkomandi býr
Vottorð úr fyrirtækjaskrá (hf. og ehf.): Ríkisskattstjóri
Vottorð úr firmaskrá (sameignarfélag, samlagsfélag og einkafirma): Sýslumaður í viðkomandi umdæmi
Vottorð um búsforræði forsvarsmanns: Héraðsdómur þar sem viðkomandi býr